Gaf fermingarpeningana

Gaf fermingarpeningana

Mar­grét Tekla Arn­fríðardótt­ir ákvað að láta gott af sér leiða og gaf hluta af fermingarpeningnum til Rauða kross­ins og Katt­holts. Til hamingju með ferminguna Margrét og kærar þakkir fyrir að hugsa til kisanna!  ...
Þakkir vegna páskabasars

Þakkir vegna páskabasars

Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að gera páskabasarinn okkar jafn glæsilegan og raun bar vitni. Sérstakar þakkir til þeirra sem bökuðu girnilegar kökur, gáfu fallega muni og handverk, svo og til fyrirtækja sem lögðu okkur lið og til allra...
Opnunartími um páskana

Opnunartími um páskana

Skírdagur 9-11 Föstudagurinn langi 9-11 Laugardagur 9-11 Páskadagur 9-11 Annar í páskum 9-11 Ath. Aðeins tekið á móti hótel- og óskilakisum þessa daga. Kisur í heimilisleit eru ekki sýndar frá deginum í dag (miðv. 28. mars) til miðv. 4. apríl. Gleðilega...
Fullbókað á Hótel Kattholti um páskana

Fullbókað á Hótel Kattholti um páskana

Kæru kattaeigendur! Það er fullbókað á Hótel Kattholti um páskana. Þeir sem hafa áhuga á að vera á biðlista geta haft samband í síma 567-2909 eða sent póst á kattholt@kattholt.is. Nánari upplýsingar um hótelið á heimasíðunni kattholt.is. Kveðjur frá starfsfólki og...
4 dagar í basar!

4 dagar í basar!

Það eru aðeins 4 dagar í basar…við erum orðnar spenntar! Okkur vantar alltaf fleiri sem eru tilbúnir að baka fyrir okkur. Ef þú hefur áhuga þá endilega sendu póst á eygudjons@simnet.is. Eins ef þú átt páskaskraut eða annað til að gefa á basar. Við tökum á móti...
Bakað fyrir basar!

Bakað fyrir basar!

Kæru vinir! Páskabasarinn í ár verður haldinn í Kattholti 24. mars n. k. og enn vantar okkur fleiri flinka bakara! Ef þú sérð þér fært að leggja okkur lið, þá endilega sendu okkur línu á kattholt@kattholt.is eða eygudjons@simnet.is Best er að fá bakkelsið á...
Páskabasar 2018-Bakkelsi óskast

Páskabasar 2018-Bakkelsi óskast

Kæru vinir! Nú styttist í páskabasar til styrktar kisunum í Kattholti. Og því leitum við enn og aftur til ykkar með aðstoð. Kökur og kruðerí hafa skipað alveg sérstakan sess á basarnum undanfarin ár og því er einkar vel þegið að fá bakarana okkar flinku til að bretta...
Miðbær/Skuggahverfi – Reykjavík

Miðbær/Skuggahverfi – Reykjavík

Brandur litli Ljónshjarta týndist frá Lindargötu í óveðri sem gekk yfir borgina í feb./mars 2017 og hefur ekki fundist enn þrátt fyrir mikla eftirgrennslan. Hann var þá ca 7 mán., geldur og örmerktur og er ekki með hálsól. Hann er frekar feiminn við ókunnuga, en hann...
Kæru kattavinir! 

Kæru kattavinir! 

Nú þegar vetrarkuldar herja á af miklum krafti, viljum við enn og aftur minna á þann óteljandi fjölda vergangs- og villikatta sem eru á ferli í og við þéttbýli sem og í dreifbýli. Við skorum á dýravini að vera vakandi fyrir köttum sem eru á vergangi. Fæstum okkar...