by Halldóra Snorradóttir | nóv 26, 2016 | Frettir
Kæru vinir Kattholts! Hjartans bestu þakkir til allra sem komu í Stangarhylinn í dag og ykkar sem gáfuð muni og bökuðu fyrir basarinn og gerðuð okkur kleift að halda glæsilegan basar. Aldrei hafa jafn margir komið á basar Kattavinafélagsins. Tvær kisur eignuðust góð...
by Halldóra Snorradóttir | nóv 25, 2016 | Frettir
Jólabasar Kattavinafélags Íslands verður haldinn í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík á morgun, 26. nóvember milli kl. 11-16. Bakarar eru beðnir um að koma með innpakkað bakkelsi milli kl. 10-11 um morguninn. Mikið úrval af fallegum gjafavörum, m.a. dagatal Kattholts...
by Halldóra Snorradóttir | nóv 19, 2016 | Frettir
Kæru vinir. Það er orðin hefð hjá mörgum kattavinum að kíkja í Stangarhylinn laugardaginn fyrir fyrsta sunnudag aðventu, sem í ár ber upp á 26. nóvember n.k. Fjöldi gesta eykst á hverju ári, sem er sannkallað gleðiefni. Nú vantar að fleiri bakarar bætist í frábæra...
by Halldóra Snorradóttir | nóv 14, 2016 | Frettir
Kæru kattavinir, í Kattholti er kettlingafull læða sem komin er að goti og vantar því fósturheimili. Hvetjum áhugasama til að hafa samband.
by Halldóra Snorradóttir | nóv 8, 2016 | Frettir
Þessir flottu taupokar eru nýjung hjá okkur! Þeir eru sérstaklega hannaðir og prentaðir af starfsmanni í Kattholti og maka hans. Verð aðeins kr. 1.500.
by Halldóra Snorradóttir | nóv 8, 2016 | Frettir
Í Kattholti er nú til sölu fallegt skraut (íslenskt handverk), litlar kisur sem eru til í hinum ýmsu litum. Ágóðinn af sölunni rennur til Sjúkrasjóðsins Nóttar sem er ætlaður til að kosta læknisaðgerðir og hjúkrun á slösuðum kisum sem enginn vill kannast við....