19. febrúar var komið með grindhoraða læðu í Kattholt, sem fannst við Brekkuhvamm í Hafnarfirði.
Hún er með sár á auga og mun verða lögð inn á Dýraspítalann í Víðidal.
Í morgunn var hún ekkert búin að borða, svo ég sauð handa henni nýja ýsu , sem hún þáði litla skinnið.
Æ það tekur á að sjá vanrækt dýr. Það er þessi depurð í augunum á þeim.
Ég vil þakka finnendum hennar fyrir að koma með hana í Kattholt . Velkomin í skjól elsku kisan okkar.
Kær kveðja til dýravina.
Sigríður Heiðberg formaður.