Bílaleiga Akureyrar í Reykjavík hafði samband við Kattholt í morgunn út af kisu sem fannst undir vélarhlíf á bíl frá þeim.
Ég fór á staðinn og starfsstúlka frá bílaleigunni hélt á kisu litlu í fanginu.
Ég vil þakka starfsfólkinu á bílaleigunni kærlega fyrir elsku sem þau sýndu dýri í neyð.
Hér er mynd af litla kisustráknum sem er svolítið hræddur en finnur samt að hann er kominn í skjól.
Nú er bara að bíða og sjá hvort hann verður sóttur af eigendum sínum.
Velkominn í Kattholt kæri vinur okkar.
Sigríður Heiðberg formaður.