30 Maí var komið með 2 fallega kisustráka í Kattholti. Þeir fundust við Skúlagötu í Reykjavík.
Þeir eru mjög ljúfir og góðir. Átakanlegt er að horfa á lítil kisubörn í þessum vanda.
Vanræksla á þessum vinum okkar er til skammar í okkar velferðarþjóðfélagi.
Vorið hefur verið mjög erfitt í Kattholti. Mörg tár hafa fallið hér.
Kisurnar koma frá Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ , Hafnarfirði .
Sveitafélögin verða að koma til hjálpar.
Kattholt hefur starfað í 16 ár, hvað hefur breyst?
Ég vona að Kattholt hafi burði til að halda starfinu áfram .
Þið megið samt trúa því að útlitið er ekki gott.
Kær kveðja.
Sigríður Heiðberg formaður.