Reiður formaður.

31 okt, 2007

Bröndótt ung læða kom í Kattholt 31. október sl. Hún hafði fundist inni í þvottahúsi í Hraunbænum í Reykjavík.


 


Dýrið er mjög horað og  vansælt.


Oft hef ég hugsað, hvað er að kattaeigendum sem láta dýrin sín út ómerkt. 


 


Kisur sem eru ómerktar eru ekki elskaðar las ég í blaði.


 


Hvað er með kisurnar sem eru í Kattholt eyrnamerktar eða örmerktar og eru ekki sóttar . Hvaða ábyrgð er lögð á eigendur ?


 


Ég get sagt ykkur að ábyrgð eiganda katta er engin. Meðan svo er ganga kisur um borgarlandið ómerktar, eða merktar og eru ekki sóttar í athvarfið, því viðurlög eru engin.


 


Það er sorglegt að horfa upp á hvað brotið er á kisunum okkar. 


 


Ég hef verið formaður Kattavinafélags Íslands frá ´90. Kattholt opnaði ´91 og stundum skammast ég mín að hafa ekkert getað gert til að breyta þessu.


 


Samt er ég þakklát fyrir margt gott sem ég hef gert hér, í viðleitni minni að búa betur að blessuðum dýrunum okkar.


 


Aðeins hugleiðingar mínar.


Kær kveðja


Sigríður Heiðberg formaður.