Okkur líður vel í Kattholti.

26 maí, 2007

Kæru dýravinir. Ég sendi ykkur nýjar myndir af kisubörnunum sem voru settir í kassa við blaðagám við Bústaðaveg í Reykjavík 23. Apríl sl.

 

 

Þeir dafna vel litlu skinnin og eru lífsglaður. Það er eins og maður verði fyrir áfalli þegar svo stórlega er brotið á dýrunum okkar.

 

 

Ég þakka öllum þeim sem af stórhug stofnuðu Kattavinafélag Íslands og höfðu það að meginmarkmiði að bæta aðbúnað katta á Íslandi.

 

 

Takk fyrir Kattholt.

 

 

Kær kveðja.

 

Sigríður Heiðberg

 

Formaður.