Neró kveður og þakkar fyrir sig.

7 sep, 2007

Neró í fangi nýs eiganda. Gleðidagur í Kattholti er okkur tókst að finna góðan eiganda fyrir  vin okkar.


 


Við þökkum Neró fyrir samveruna og erum þakklát fyrir að hafa átt hlutdeild  í  að hann er kominn inn á gott og öruggt heimili.


 


Megi blessun fylgja  þeim.


 


Ég kom í Kattholt 15. mars 2007.


 


Skýrslan um mig segir að ég hafi fundist við Írabakka í Reykjavík. Geltur, ómerktur.


 


Ég veiktist af kvefi og var meðhöndaður með sýklalyfi. Í dag er ég við bestu heilsu og líður vel.


 


Starfsfólkið segir að ég sé blíður kisustrákur og fæ ég að sitja í fanginu á þeim í kaffitímanum.


 


Sigga segir að ég sé kominn í heiminn til að gleðja og veita ást.


 


Ef þú lest þessar línur frá mér, gætir þú hringt í Kattholt og fengið upplýsingar um mig. Ég var skýrður Neró hér í athvarfinu.


 


Mig dreymir um að eignast gott heimili.


Kveðja Neró.