Litlu kisubarni var hent út við Kattholt um kvöldið 4. Júní sl.
Það var litla dýrinu til bjargar að leigjandi í Kattholti heyrði hljóð fyrir utan og fann litla dýrið rennandi blautt og hrætt.
Hann er mjög ljúfur og vill vera í fanginu á starfsfólkinu enda er aldurinn ekki hár.
Enn og aftur er brotið á dýrunum okkar.
Guð gefi okkur styrk til að halda starfinu áfram.
Kæru dýravinir stöndum saman .
Sigríður Heiðberg formaður.