4 mánaða högni fannst 31. október við Framnesveg í Reykjavík. Kom í Kattholt 15. nóvember .
Hann er ekki viltur litla skinnið, þó er hann mjög var um sig, trúlega búinn að vera lengi á flækingi , kannski fæddur úti.
Það er gott að hann er kominn í Kattholt í skjól . Næstu dagar munu leiða í ljós hvort hann þýðist okkur.
Velkominn í Kattholt elsku vinur.
Kveðja
Sigga.