Mjallhvít hefur dvalið í Kattholti í 2 ár. Fór á nýtt heimili frá Kattholti 17. nóvember 2007.

14 nóv, 2007

Hvít læða fannst við Austurgötu í Hafnarfirði.  Kom í Kattholt 28.desember 2005.  Hún er með gyllta hálsól ómerkt.


Hún var mjög horuð við komuna í athvarfið , eignaðist 3 kettlinga 15. febrúar 2006.


Skaphöfn hennar er einstök, blíð og æðrulaus .


Margar kisur í okkar þjóðfélagi ráfa um ómerktar, svangar og illa hirtar.


Ég verð oft reið þegar illa er farið með dýrin okkar , samt ber ég þá von í brjósti að fólk sjái að sér og hugsi betur um dýrin sín.


Þó að ég tali fyrir hönd katta þá á þetta við um öll dýr.


Sýnum þeim elsku og virðingu.


Það er von mín að Mjallhvít litla fái gott heimili , hún hefur mikið að gefa.


Kær kveðja.


Sigríður Heiðberg .


 


.