Kattholt nýtur engra styrkja frá hinu opinbera.

28 ágú, 2009

Hugleiðingar Sigríðar.


 


Á tímabilinu 1. ágúst til 27. ágúst hafa 60 óskilakettir komið í Kattholt.


 


Níu af þeim hafa verið sóttir, sex villtir hafa verið svæfðir en fjörtíu og fimm dvelja enn í Kattholti.


 


Hvað segir þetta okkur.?


Ég fullyrði að kisunum okkar er hent út af heimilum sínum í stórum stíl og komið fyrir í Kattholt.


 


Spurningin er þessi, hver á að borga?  Hér þarf að greiða starfsfólki laun og fóðurkostnaður er mikill.


 


Kattvinafélag Íslands var stofnað til að hjálpa kisunum í neyð þeirra.


Hér í Kattholti dvelja að jafnaði um 100 kettir og þannig hefur það verið alveg frá opnun 1991 .


 


Kattholt nýtur engra styrkja frá hinu opinbera.


 


Eins og þið vitið er Stangarhylur 2 í eigu katta.  Fasteignagjöld af húseigninni er um 1 milljón á ári.


 


Ég tel að ekki megi ganga svo á eignina að hætta sé á að við missum hana.


 


Þá getum við ekki lengur hjálpað kisunum okkar.


 


Myndin er af 2 mánaða  kisustrák sem fannst við Hátún  í gær og kom í Kattholt 28.ágúst.


 


Kær kveðja


Sigríðar Heiðberg formaður.