Þrílit læða fannst við Lindarbraut á Seltjarnarnesi Hún hafði haldið sig undir sólpalli við húsið.
Einn daginn kom hún með 1 kettling með sér en fór alltaf undir pallinn aftur.
25.október kom hún í Kattholt og unglingurinn með henni, sem reyndist viltur og var svæfður af dýralækni eftir töluverðan tíma hér í Kattholti.
Fjótlega kom í ljós að læðan var kettlingafull og var strax auglýst eftir fósturmóður til að taka hana til sín og hjálpa henni með kettlingana.
Það er mjög erfitt í athvarfinu að ala upp kettlinga.
Kristín fósturmóðir sendi okkur þessa fallegu mynd af kisubörnunum. Þeir fara inn á ný heimili í febrúar frá Kattholti, örmerktir.
Það er gott að vita af dýravinum.
Kær kveðja.
Sigga.