Varptími fuglanna

28 maí, 2014

Kattavinafélag
Íslands hvetur kattaeigendur til að fara að reglugerðum sveitarfélaga og halda
köttum sínum innandyra eins og mögulegt er á meðan á varptíma fugla stendur.

Í reglugerð
Reykjavíkurborgar um kattahald í borginni segir m.a.:

„Til að
lágmarka tjón sem kettir geta valdið fuglalífi í borginni ber eigendum að
hengja bjöllu á ketti á varptíma fugla eða takmarka eftir atvikum útiveru
katta“.

Höfum þetta
í huga með heimiliskettina okkar. Erfiðara er með villiketti, sem lítið æti
hafa. Munum líka eftir þeim.