Undurfögur læða leitar ásjár fyrir utan Kattholt.

18 des, 2009

18. desember er starfsfólk kom til vinnu sinnar heyrðist mjálm við sorptunnu bak við Kattholt.

 

 

Í ljós kom undurfögur þrílit læða, köld og hrædd. Hafðu hún verið skilin eftir fyrir utan.

 

 

ÆÆ þetta er svo sorglegt , sér í lagi þegar mesta hátíð okkar kristinna manna er að ganga í garð.

 

 

Velkomin í Kattholt kisan okkar, hér er nógur matur og hlýtt rúm.

 

 

Kær kveðja .

 

Sigríður Heiðberg formaður.