Sigríður Heiðberg látin

23 feb, 2011

 

Nú ríkir mikil sorg í Kattholti vegna fráfalls okkar ástkæru Sigríðar Heiðberg.  Sigríður var forstöðukona Kattholts í tæp 20 ár og öflug baráttukona fyrir velferð katta á Íslandi. Hún var jafnframt formaður Kattavinafélags Íslands.

 

Sigríður lést að morgni 22. febrúar eftir erfið veikindi.

 

Með sorg í hjarta kveðjum við vinkonu okkar. Hvíli hún í friði.

 

Starfsfólk Kattholts og stjórn Kattavinafélags Íslands.