Hvítur og svartur högni fannst í Heiðmörk. Kom í Kattholt 14. ágúst sl.
Hann heitir Romeó, örmerktur 35209810001391.
Hann er skráður í Jóruseli í Reykjavík.
Ekki hefur verið hægt að ná í eiganda kisu.
Það er með ólíkindum að eigendur skuli ekki ná í kisurnar sínar.
Okkur ber að elska kisurnar okkar og veita þeim öryggi.
Ég er bálreið út í eigendur katta sem eru ekki sóttir .
Kveðja Sigríður Heiðberg formaður.