Persa læða skilin eftir í bíl í Reykjavík. 11.apríl fer kisan á nýtt heimili.

7 apr, 2008

Persa  læða fannst í bíl við B.S. Í. Í Reykjavík. Starfsfólk hjá Kynnisferðum hafði tekið eftir kisu inn í  bil á planinu.

 

 

Haft var samband við mig og fór ég á staðinn.  Það var heldur  dapurleg sjón að sjá dýrið í vanmætti sínum.

 

 

Ég flutti hana í Kattholt og reyndi eftir megni að hlúa að henni, hún var mjög hrædd. Í  dag mun Héraðsdýralæknir í Reykjavík meta ástand kisunnar.

 

 

Ég vil þakka bílstjórunum á B.S.Í. alla þeirra aðstoð.

 

 

 

Takk fyrir Kattholt.

 

Sigríður Heiðberg formaður.