Pappakassi fyrir utan Kattholt.

22 jún, 2010







 
 

3 kettlingar, 6 vikna voru bornir út við Kattholt.

 

Eftir matarhlé starfmanna í Kattholti, var pappakassi með litlum kisubörnum í fyrir utan athvarfið.

 

Þeir voru mjög hræddir litlu skinnin.

 

Ég segi enn og aftur,

ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur.

 

Hvers eiga kisubörnin að gjalda að vera settir í kassa og bornir út.

 

Meðferð á kisum er til skammar.

 

Kveðja Sigga.