Ómar og Snúlli 4 og 6 ára -Útikettir

19 des, 2025

Ómar og Snúlli óska eftir því að komast saman á gott framtíðarheimili. Ómar er gulbröndóttur og fæddur árið 2020 og Snúlli er svartur og hvítur fæddur 2022. Þeir eru útikettir og eru ennþá svolítið feimnir hér í Kattholti

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Ómar og Snúlla. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.