Elsa er lítil og nett læða sem vill fá að komast út og inn að vild. Hún er viðkvæm kisa sem þarf góðan tíma til að venjast nýju heimili og aðstæðum og óskar því eftir rólegu heimili og þolinmóðu fólki. Aldur: 3 ára.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Elsu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
