Nonni 6 ára – Útiköttur

1 jún, 2026

Jón (Nonni) er yndislegur svartur fress sem elskar að fá klapp og knús og kíkja stundum út. Hann óskar eftir ástríku og góðu heimil þar sem hann mun fá að vera til æviloka.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Nonna. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.