Lukka 3 ára – Innikisa

22 maí, 2026

Lukka er 3 ára þrílit læða. Hún vill enga snertingu hjá okkur í Kattholti eins og er og er mjög feimin. Hún óskar eftir rólegu heimili sem er tilbúið að gefa henni tækifæri og þolinmæði.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Lukku. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.