Myrkvi 4 ára útikisi

12 júl, 2024

Myrkvi fallegi er 4 ára gamall svartur útikisi sem óskar eftir traustu framtíðarheimili þar sem hann kæmist út að leika. Hann er mjög leikglaður og ljúfur en ekki vanur börnum eða öðrum dýrum.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða kisu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.

Ljósmyndari: Nadia Jade Cross