Louis er 1 1/2 árs gulbröndóttur og hvítur fress sem óskar nú eftir rólegu og traustu fósturheimili þar sem hann fær tækifæri til þess að jafna sig eftir aðgerðarferli á mjaðmakúlum. Hann má ekki fara út á fósturtímanum.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Louis. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.