Mikjáll 9ára – Útiköttur

28 jan, 2025

Hann elsku Mikjáll okkar er stór og flottur köttur.

Hann er ljúfur og góður köttur. Hann er góður við fólk sem og aðra ketti.

Hann er að leita sér að góðu heimili þar sem hann fær klapp og knús alla daga.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Mikjál. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.