Gulbröndóttur og hvítur högni fannst við sumarhúsabyggð á Laugarvatni.
Hann kom í Kattholt 22. september sl. Hann er eyrnamerktur 5R201.
Við skoðun á kisunni kom í ljós að hann er frá Kattholti.
Hann fór inn á nýtt heimili frá athvarfinu 2. júní 2005. Afhentur geltur og eyrnamerktur.
Ég hef reynt að ná í skráðan eiganda, en ekki tekist. Fólkið sem kom með kisuna segir að hún sé búinn að vera lengi á flækingi þar um slóðir.
Kær kveðja.
Sigríður Heiðberg