Læðan er ánægð og hress með börnin sín eftir keisaraskurð

14 maí, 2009

Svört og hvít kettlingafull læða úr Kattholti var komin að goti og var fylgst vel með henni af starfsfólkinu.


 


12. maí hófust hríðar hjá henni , fljótlega kom í ljós að hún gat ekki fætt .


 


Ég fór með litla skinnið á Dýraspítalann í Víðidal og dýralæknirinn sagði að hún mundi þurfa að fara í keisaraskurð.


 


Aðgerðin tókst vel og í ljós komu 4 yndislegir kettlingar.


 


Sjúkrasjóðurinn Nótt mun greiða aðgerðina.


 


Sjóðurinn var stofnaður til að greiða aðgerðir á kisum sem finnast vegalausar og  slasaðar.  


 


Ég vil þakka öllum þeim sem styrkt hafa sjóðinn.


 


Það gerir okkur kleift að bjarga dýrunum í neyð þeirra.


 


Kisan sem liggur á spítalanum með nýfæddu börnin sín er ykkur að þakka.


 


Með vináttukveðju.


Sigríður Heiðberg formaður