2 apríl kom hvítur og bröndóttur högni í Kattholt.
Hann fannst í Hafnarfirði.
Við skoðun kom í ljós að hann er örmerktur 352206000038006.
Hann heitir Kvæsi , mjög fallegur og ljúfur.
Fljótlega náði ég í skráðan eiganda hans. Var hann búinn að vera týndur í 8 mánuði.
Gleðin var mikil er dýrið komst í fang eiganda síns eftir langan aðskilnað. Til hamingju.
Takk fyrir Kattholt.
Sigríður Heiðberg formaður.