Köttur á ferð á flugi

26 feb, 2008

Köttur sem fór í þriggja vikna ferðalag um Bandaríkin lokaður inn í gámi er á leið heim til Flórída.

 

Kötturinn, sem er tveggja ára, skreið inn í gám fyrir utan hús í Pompano Beach á Flórída er maður var að að undirbúa flutning til Phoenix í Arizona.

 

Gámurinn var geymdur í vöruskemmu í Flórída í einhvern tíma áður en hann var fluttur til Phoenix.

 

Þar var á þriðjudag sem starfsmaður flutningsfyrirtækisins heyrði köttinn mjálma og fann inni í gámnum, svangan og þyrstan.

 

Þegar farið var að rannsaka málið kom í ljós að maðurinn sem var að flytja mundi eftir svipuðum ketti úr nágrenninu á Flórída og í ljós kom að kötturinn hét Meatloaf eða Kjöthleifur og hafði verið saknað í einhvern tíma. Höfðu eigendur Kjöthleifs hengt upp auglýsingar í nágrenninu og voru að vonum glöð þegar fréttist af kettinum í Phoenix.

 

Mun Kjöthleifur fljúga heim fljótlega en hann þarf að jafna sig aðeins betur áður en hann heldur af stað í ferðalag á ný.

 

Fréttin birtist á Mbl.is.

Til baka