Kisubarn á vergangi.

7 okt, 2007

Lítill 6 vikna högni fannst í Grindavík og kom í Kattholt 6. október sl.


 


Móðir hans hefur sést með annan kettling í grendinni. 


 


Það er alltaf sorglegt þegar lítið kisubarn verður viðskila við móður sína.


 


Trúlega  er læðan vilt , það segir mér að lífsbaráttan er erfið hjá blessuðu dýrunum okkar.


 


Litla kríið er samt komið í Kattholt í skjól með nógan mat og hlýju frá starfsfólkinu.


 


Velkomin í Kattholt.


 


Kær kveðja.


Sigríður Heiðberg formaður.