Kappi 7 ára – Útiköttur

3 des, 2025

Kappi óskar eftir góðu heimili. Hann er feiminn og þarf góðan tíma til að aðlagast. Eftir það getur hann fengið að kíkja út af og til.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Kappa. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.