Kæru Kattholtskonur

9 okt, 2006

Inn á vefsíðunni ykkar er að finna auglýsingu frá okkur frá 19.9. undir flokknum „eftirlýstir kettir“ með yfirskriftinni „Skólavörðustígur fundinn“.
 

Kisan hefur nú dvalið hjá okkur síðan og er búin að ná sér að fullu. Við héldum reyndar að hann væri heyrnalaus þar sem hann sýndi engin eðlileg viðbrögð við hljóði, en komumst af því síðar að vesalings dýrið var svo uppgefin og máttvana eftir þvælinginn. Hann svaf og borðaði til skiptis í viku og eftir það kom í ljós að ekkert var að honum.

 

Við auglýstum hann víða en engin gaf sig fram og höfum við því ákveðið (reyndar fyrir löngu) að halda honum hjá okkur. Hann hlaut nafnið Skúli og er ein sú blíðasta og skemmtilegasta kisa sem við höfum átt. Hann spjallar við okkur í hvert sinn sem talað er við hann og býður góðan dag á morgnana með kossi. Við erum með tvær kisur fyrir, högnann Kára sem kom úr Kattholti í mars sl. og læðuna Móu sem við fengum á Dýraspítalanum í Garðabæ um svipað leiti.

 

Kári var fljótur að sætta sig við Skúla en hún Móa okkar blessuninn sem öllu ræður er enn svolítið vör um sig. Það stendur ábyggilega til bóta þar sem Skúli var á dögunum gerður að löglegum fress með því að fara í geldingu, örmerkingu, eyrnamerkingu, ormahreinsun, bólusetningu …  og hvað þetta nú allt heitir.

 

Að þessu sögðu viljum við þakka ykkur kærlega fyrir að birta auglýsinguna af honum kisa sem fannst á Skólavörðustígnum – hann hefur nú eignast heimili þar sem hann er saddur og sæll alla daga.

 

Kær kveðja,

Anna María McCrann og Kristinn Örn Torfason

Óðinsgötu

Reykjavík