Kæru dýravinir

12 jún, 2006

Það var  í September 1991 að komið var með gulbröndóttan og hvítan 1 árs kisustrák í Kattholt.


Hann fannst við Vífilsstaði ,veikur,horaður,og þreklítill. Hann var eyrnamerktur svo ég hringdi strax í eiganda hans. Hún tjáði mér að hún væri búin að gefa hann . Sú ákörðun var tekin að hann skyldi búa í Kattholti Hann var skýrður Emil í Kattholti og þjónaði  athvarfinu í 13 ár. Hann var einstakur kisustrákur,tók að sér vegalausa kettlinga og hugsaði um þá eins og besta móðir.


Blessuð sé minning hans.Hvað hefur breyst síðan Emil var borinn inn í Kattholt  nær dauða en lífi.


Stundum finnst mér okkur miða áfram, svo kemur höggið,kisum hent út úr bílum,kisur settar í kassa fyrir utan athvarfið sama hvernig viðrar ,eða hent inn um gluggana.


Kæru dýravinir . Við getum aðeins vonað að þar verði breyting á.


Kveðja Sigríður Heiðberg.