Jólabasar Kattavinafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 3. desember n.k. kl. 11-16 í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík.
Á boðstólum verða fallegir munir er tengjast jólunum s.s. merkispjöld, jólapappír, jólaskraut, handverk ásamt hefðbundnu basardóti. Á basarnum verður til sölu dagatal ársins 2023. Einnig kisutengdur varningur s.s. kattastyttur, skartgripir og fleira.
Eins og endranær þá verðum við með girnilegar smákökur og annað bakkelsi.
Yndislegar kisur verða sýndar sem allar eiga það sameiginlegt að þrá að eignast ný og góð heimili.
Allur ágóði fer til styrktar óskilakisunum í Kattholti.
Verið hjartanlega velkomin,
Basarnefnd.