Jólabasar í Kattholti

23 nóv, 2014

Hinn árlegi jólabasar Kattavinafélags
Íslands verður haldinn laugardaginn 29. nóvember n.k. kl. 11-16 í Kattholti,
Stangarhyl 2, Reykjavík.

Á boðstólum verða fallegir munir er tengjast jólunum svo sem jólakort, merkispjöld, jólapappír, jólaskraut,
handunnin kerti og kramarhús.

Einnig verður
til sölu dagatal ársins 2015, fallegir bolir með
kisumyndum, leikföng, styttur, vefnaðarvara, handtöskur, skartgripir og margt
fleira. 

Eins og endranær þá verðum við með girnilegar
smákökur og annað bakkelsi.

Síðast en ekki síst verða sýndar
yndislegar kisur, sem allar eiga það sameiginlegt að þrá að eignast ný og góð
heimili.

Allur ágóði fer til styrktar óskilakisunum í
Kattholti.


Verið hjartanlega velkomin, 

Basarnefnd.