Hver gaf dýraeftirlitsmanni leyfi til að lóga dýrinu? Af hverju var ekki kallaður til dýralæknir.

8 apr, 2008

Aflífa varð köttinn


*Grindhoraður og innilokaður köttur á Akranesi lifði ekki vistina af og var lógað *Málið rannsakað hjá lögreglunni


 


LÖGREGLAN á Akranesi hyggst boða fyrrum leigjendur íbúðar, þar sem köttur var skilinn eftir við flutninga, í skýrslutöku á næstunni vegna brota á dýraverndarlögum. Lögreglan fékk í vikunni ábendingu um að kötturinn væri vanræktur og yfirgefinn í íbúðinni og þurftu lögreglumenn að klifra utan á húsinu til að komast í íbúðina inn um svalir á 3. hæð.


 


Kötturinn var þar inni og hafði mjálmað mikið í einverunni við sívaxandi hungur. Hann var grindhoraður og nær dauða en lífi þegar að var komið og var komið í hendur dýraeftirlitsmanns sem lógaði dýrinu síðar.


Brot á dýraverndarlögum


Lögreglan segir að hér sé um að ræða brot á dýraverndarlögum með því að skilja köttinn eftir í reiðileysi. Málið er nú í formlegri rannsókn lögreglunnar en skýrslutökur eru ekki hafnar.


 


Að sögn lögreglunnar er afar leitt þegar dýr eru látin sæta annarri eins meðferð og hér um ræddi.


 


Samkvæmt dýraverndarlögum frá 1994 er skylt að fara vel með öll dýr. Eigendum eða umráðamönnum dýra ber að sjá þeim fyrir viðunandi vistarverum og fullnægjandi fóðri, drykk og umhirðu.


 


Leiki grunur á að um sé að ræða alvarlegt brot gegn lögunum, getur lögregla fyrirvaralaust tekið dýr úr vörslu eiganda eða umsjónarmanns. Í þessu skyni má lögregla fara inn í íbúðarhús án dómsúrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi dýrunum heilsutjóni.


 


Allt að tveggja ára fangelsi liggur við brotum á dýraverndarlögum.


Hafi maður gerst sekur um stórfellt eða ítrekað brot á lögunum má svipta hann með dómi heimild til að hafa dýr í umsjá sinni, versla með þau eða sýsla með þau með öðrum hætti.


 


Málið hefur vakið nokkra athygli í bloggheimum á mbl.is og lýsa höfundar þar vanþóknun sinni á meðferð kattarins


 


Morgunblaðið, laugardaginn 5. apríl 2008