Það er alltaf mikil gleði í Kattholti þegar óskiladýrin sem eigendur sækja ekki fá ný heimili.
Það hjálpar okkur að halda starfinu áfram. 3 febrúar fór þessi yndislegi högni norður í Skagafjörð.
En Sigríður Fjóla sem þar býr ásamt fjölskyldu sinni hafði séð kisuna á heimasíðu Kattholts og hringdi strax.
Hann var geltur og örmerktur í Kattholti.
Tl hamingju kæri vinur og nýja fjölskyldan þín.