Hefur einhver séð Carlos ?

21 feb, 2009

Carlos enn týndur, frá mars 2008.



Kisan okkar hann Carlos týndist fyrir tæplega ári.  Hann er okkur mjög kær enda á hann sér sérstaka sögu. 


Carlos fannst út í hrauni, nýgotinn og hefur aldrei verið alinn upp af sinni kisumóður.  Svo í raun má segja að Carlos sé handmataður. 


Í þeirri veiku von að Carlos okkar finnist auglýsi ég eftir honum aftur.



Carlos er hvítur og svartur, örmerktur 208224000163370 og geltur.
Hann er með tvo svarta bletti sitthvoru meginn á trýninu. 


Þegar hann týndist var hann tæplega 1 árs.  Ef eitthver getur veitt okkur upplýsingar hvar Carlos er niðurkominn, vinsamlegast hringið í síma
693-1064  Stefán eða sendið póst á sthor.vet@gmail.com.