Salome Fjeldsted dvelur á Hótel Kattholti um páskana. Hún 21 árs gömul læða.
Hún er við bestu heilsu og er bara ánægð að vera á hótelinu.
Skapferli hennar er gott og er hún mjög blíð og þæg.
Samt stendur hún á sínu og vill ekki láta ónáða sig of mikið.
Hún er með mikinn farangur með sér sem hún geymir í ferðatösku, þar á meðal eru snyrivörur og heilsufæði.