Gleðilega páska

5 apr, 2007

Kattavinafélag Íslands óskar öllum dýravinum gleðilegra páska.

 

50 kisur gista á Hótel Kattholti um páskahátíðina.

 

Ótrúlegur fjöldi vegalausra katta er hér um þessar mundir.

 

Við þökkum öllum þeim sem styrkt hafa starfið hér í Kattholti.

 

Myndin er af Nikulás mömmustrák sem fannst í  janúar 2006 í  Mosfellsbæ aðeins 2 mánaða gamall.

 

Hann á gott heimili í dag og býr við Laufásveg í Reykjavík.

 

Kær kveðja.

 

Sigríður Heiðberg formaður.