Gugga Bína 2 ára

11 mar, 2026

Gugga Bína er um 2 ára kisa sem fæddist í sveit og hefur ekki mikla reynslu af mannfólki. Hún er frekar stressuð og þarf mjög góðan tíma til að venjast. Hún óskar eftir góðu fólki sem er til í að taka henni eins og hún er og með mikilli þolinmæði. Hún vill ekki snertingu og heldur sig til hlés eins og staðan er núna. Hún þarf að vera inni allavega til að byrja með.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Guggu Bínu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.