Sæl Sigríður.
Vildi bara láta vita af honum Magnúsi. Hann hefur það gott hér á Blönduósi.
Hann sefur alla daga og kíkir út á lífið á nóttunni. Hann er mjög geðgóður, t.d. tekur hann því þegjandi og hljóðalaust að láta skola af sér í baðkarinu (því hann er nú hálfgerður sóði stundum).
Hann mjálmar mikið ef hann vantar eitthvað, en annars er hann bara hvers manns hugljúfi.
Það er leiðinlegt að horfa upp á alla þessa heimilislausu ketti á heimsíðunni ykkar.
Vonandi fá sem flestir þeirra heimili.
kv.
Sigurbjörg