|
Sæl Sigríður og Kattholtskonur.
Ég vil senda þér smá bréf um hann Fróða sem við fengum í Kattholti í enda maí. Hann var skilinn eftir í pappakassa við blaðagám ásamt tveimur systkinum sínum.
Þvílík mannvonska, að hafa svona lagað í sér er eitthvað sem ég mun aldrei skilja.
Hann Fróði, eða Lilli eins og hann er kallaður hér á þessu heimili, hefur það ákaflega gott
Tumi kisi tók hann algjörlega að sér og eru þeir perluvinir. Karma var nú eitthvern smá tíma að venjast honum, en allt er í góðu núna og öll leika þau sér saman núna.
Lilli er mjög matsár og sníkir jafnt eins og um hund væri að ræða, mænir á mann með fallegu augunum sínum og stundum getur maður ekki annað en látið undan 🙂 Hann átti svolítið erfitt þegar hann kom til okkar enda ekki skrýtið þar sem var einn hundur og tveir kettir fyrir á heimilnu. En nú er hann allur kominn til og er hinn yndislegasti og mesta kúridýr sem um getur 🙂
Jæja, ég vildi bara senda ykkur þessar línur héðan úr Garðabænum og í leiðinni hvetja ykkur áfram í því frábæra starfi sem þið vinnið í þágu dýranna. Það er ómetanlegt.
Kær kveðja frá Kattholtskisunum þremur sem verða í ævinlegri þakkarskuld við Kattholt. Takk fyrir okkur 🙂
Sendi nokkrar myndir af dýrafjölskyldunni.
Kveðja,
Ragnhildur, Gunnar, Lilli, Tumi, Karma og Esja(Labbi)