Bröndóttur 3 mánaða högni fannst slasaður og blautur við Fornhaga í Reykjavík. Hann kom í Kattholt 29. ágúst sl.
Ég fór með hann á Dýraspítalann í Víðidal þar sem dýralæknir skoðaði hann og röngenmyndaði og gaf honum kvalastillandi lyf.
Hann reyndist ekki brotinn en hefur fengið slæmt högg ofarlega á lærlegg.
Trúlega hefur hann legið úti í nótt eftir slysið, því hann er mjög hrakinn og þreyttur.
Var hann lagður inn á spítalann og er það von okkar að hann nái heilsu litla skinnið.
Takk fyrir Kattholt.
Kær kveðja .
Sigríður Heiðberg formaður.