Dúlla – Innikisa

27 apr, 2026

Dúlla er svört læða sem óskar eftir framtíðarheimili. Hún er feimin og hrædd hér í Kattholti. Hún er með ofvirkann skjaldkirtil og þarf að taka lyf við því en ætti að geta lifað góðu lífi þrátt fyrir það en þarf að fylgjast með. Hún óskar eftir rólegu heimili t.d hjá einstakling eða pari sem getur gefið henni allan þann tíma og þolinmæði sem hún þarf á að halda.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Dúllu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.