Bræðurnir Geiri og Kolur 5 mánaða innikisur

21 okt, 2024

Bræðurnir Geiri og Kolur eru nú í leit að traustu framtíðarheimili. Þeir hafa verið frekar lengi að koma út úr skelinni hjá okkur, en Geiri, sá vinstra megin, er aðeins félagslyndari enn sem komið er. Þeir sækjast báðir mikið í stálpuð börn og líður vel í návist þeirra. Þeir hafa verið innikisur hingað til.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða þá. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.