Bóbó og Pepsí 9 og 10 ára innikisur

12 júl, 2024

Bóbó og Pepsí eru 9 og 10 ára gömul systkini sem eru nú að leita sér að traustu framtíðarheimili þar sem þau una sér sem innikisur. Þau eru ekki vön börnum eða öðrum dýrum en eru mjög ljúf og blíð og skemmtileg. Ath. þau fara á verði einnar kisu þar sem þau vilja fara saman á nýtt heimili.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða kisurnar. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.

Ljósmyndari: Nadia Jade-Cross