Hér er Bjartur sem er arftaki Emils í Kattholti. Hann fannst eins og margir aðrir kettir vegalaus í Mosfellsbæ 10. nóvember 2004.
Skráður eigandi hans sótti hann ekki.
Skapgerð hans er einstök, hann er yfirvegaður og býr yfir einstakri ró. Hann er verðugur fulltrúi katta .
Hann er nýfluttur inn á skrifstofuna og dvelur þar og tekur á móti gestum og sýnir þeim vináttu.
Sigga segir að ég sé góður köttur og er hún bara montin af mér.
Kveðja Bjartur.