Baddi er alveg ótrúlegur kall

2 nóv, 2006

Þann 21.september týndist Baddi kisi úr Drápuhlíðinni í Reykjavík.  Hann var nýfluttur hingað í Hlíðarnar úr Vesturbænum og eitthvað ekki sáttur enn við nýja heimilið. 

 

Það vildi því ekki betur til en svo að hann hreinlega hvarf sporlaust einn góðan veðurdag…þann 21.september eins og áður segir. Hvarf Badda var auglýst á heimasíðunni ykkar í Kattholti, í Velvakanda, á barnaland.is og í Sunnubúðinni en allt kom fyrir ekki. 

 

Baddi lét ekki sjá sig og ekkert spurðist til hans. Það var ekki fyrr en rúmum mánuði síðar, í kringum 20.október að dró til tíðinda.  Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er með gömlu íbúðina í vesturbænum í sölu og sýni hana sjálfur reglulega.  Það var einmitt í slíkri sýningu einn daginn að Baddi mætti mjálmandi að gömlu íbúðinni sinni og vildi komast inn! 

 

Hann var búinn að þvælast í heilan mánuð alla leið úr Hlíðunum og finna gamla staðinn sinn í vesturbænum… og bara merkilega vel á sig kominn.  Alveg ótrúlegt að karlinn skyldi rata alla þessa leið einn og óstuddur!!! Baddi er núna kominn í Hlíðarnar aftur og unir hag sínum betur nú.  Hann er farinn að kíkja aðeins út en bara stutt í einu og passar að fara ekki of langt! Mig langaði bara að deila þessu litla ævintýri hans Badda með ykkur því ég veit þið hafið gaman af og þakka á sama tíma fyrir að auglýsa eftir honum fyrir mig.
 
kv.Smári